
elviofisler
St-Martin (Fribourg), Suisse

11 février 2007 à 9:39
Message 9 de 10
Consulté 2 387 fois
Signaler ce message aux modérateurs
Haut de la page
|
Bonjour (il fait gris et pluvieux chez nous, avec un vent à décorner les boeufs, en plus). Avec le club alpin local (www.fi-is), nous imaginions (pour la période du 14 juillet au 4 août), les treks suivants (voir ci-dessous). De fait, quelques mots nous "échappent" encore (presque tout mais surtout): - rúta - trúss Problème, peut-être, le trajet du nord jusqu'à Landmannalaugar depuis le nord-ouest en une journée. Globalement, nous imaginions, sur prospectus, que ce serait vraiment le top, avec une palette large de découvertes. Votre avis? euh, votre traduction peut-être (Google images fait un bout, mais c'est partiel, et http://www.dictionaric.com/dico%20islandais%201%201000.htm est vraiment laconique).
S–20 Nýtt HORNSTRANDIR 2 skór Saga, byggð og búseta 17. – 23. júlí, 7 dagar Fararstjóri: Ólöf Sigurðardóttir Hámarksfjöldi: 18 Í þessari ferð verða helstu þéttbýliskjarnar Hornstranda heimsóttir þ.e. Aðalvík, Hesteyri og Grunnavík. Fræðsla um sögu þessara byggðakjarna í nokkuð víðtækum skilningi, bæði atvinnulega og menningarlega. Farþegar koma til Ísafjarðar að kvöldi mánudagsins 16. júlí og gista á eigin vegum. Sameiginlegur matur sem ekki er innifalinn í verði fluttur á gististaðina. 1. d. Siglt að morgni 17. júlí að Sæbóli í Aðalvík og þaðan gengið til Hesteyrar með viðkomu í Staðarkirkju í Aðalvík. Farangur og sameiginlegur matur fluttur til Hesteyrar. Gist í Læknishúsinu. 2 .– 3. d. Dvalið á Hesteyri við sögulegan fróðleik, göngur og kvöldvökur. 4. d. Siglt að morgni föstudagsins 20. júlí til Grunnavíkur. 5. – 6. d. Dvalið í Grunnavík við fróðleik og sögur, göngur og glens og gaman. 7. d. Gengið yfir Snæfjallaheiði gömlu póstleiðina og siglt frá Snæfjallaströnd út í Æðey þar sem litast verður um og snætt hlaðborð að hætti Æðeyjarbænda. Þaðan verður síðan siglt til Ísafjarðar. Innifalið: Sigling, gisting, trúss og fararstjórn. S–15 HÁLENDIÐ Laugavegurinn. Landmannalaugar – Þórsmörk 11. – 15. júlí, 25. – 29. júlí, 30. ágúst – 2. september Fararstjórar: Steinunn Leifsdóttir, María Dögg Tryggvadóttir Gengið um Laugaveginn sem er ein vinsælasta gönguleið landsins. Fjölbreytt landslag, meðal annars háhitasvæði, sandar, ár (brúaðar og óbrúaðar) og skóglendi. 1. d. Brottför með rútu frá Mörkinni 6 kl. 8.30 og ekið í Landmannalaugar. Gengið er samdægurs í skálann í Hrafntinnuskeri. Kvöldganga um nágrennið. 2. d. Gengið yfir Kaldaklofsfjöll, jafnvel á einn tind ef veður leyfir, og í skálann við Álftavatn. 3. d. Á þessari dagleið er komið við í Hvanngili, Bláfjallakvísl vaðin og arkað yfir sanda á leið í skálana á Botnum í Emstrum. Markarfljótsgljúfur skoðað. 4. d. Vaða þarf Þröngá á leiðinni til Þórsmerkur þar sem gist verður síðustu nóttina eftir grillveislu, kvöldvöku og brennu. 5. d. Morgunleikfimi og rólegheit í Langadal áður en haldið er af stað beina leið til Reykjavíkur um hádegisbil með rútu FÍ. Innifalið: Gisting, trúss, rúta, sturtur, fararstjórn og grillveisla.
------- Elvi
|